Minni – sýning í Sal íslenskrar grafíkur 16. – 24. janúar 2021
Unnur Óttarsdóttir opnar myndlistarsýninguna Minni laugardaginn 16. janúar, 2021 kl. 14 í Sal íslenskrar grafíkur, Tryggvagötu 17, Reykjavík (Hafnarhúsið, gengið inn hafnarmegin). Sýningin stendur yfir til 24. janúar og opnunartímar eru fimmtudagur til sunnudags kl.14.00-17.00. Öll hjartanlega velkomin
Á sýningunni er fjallað um minni, minningar og hversu brotakennt, óhlutbundið og óyrt minni getur verið. Margbreytileiki minnisins er yrkisefni sýningarinnar, svo sem tilfinningaminni, reynsluminni, staðsetningarminni, lyktarminni, sjónrænt minni, skynminni, orðaminni, óljóst minni, óminni og gleymska. Með málverkum, ljósmyndum, vídeói og prentverki er ljósi beint að eðli minnisins og hve órætt það getur verið. Tilfinningaminni flæðir í litum og formum. Ljósmyndir geyma minningar og segja sögur. Lífssaga er sögð í listaverkunum.
Á sýningartímanum verður boðið upp á fríar vinnustofur þar sem unnið verður með minni og minningar með því að skoða listaverk, gera minnisæfingar, fræðast, taka þátt í listsköpun og með samtali.
Vinnustofur fara fram 18., 19. og 21. janúar kl 19.00-22.00. Hámarksfjöldi þátttakenda í hverri vinnustofu er 6 einstaklingar. Vinsamlega skráið ykkur hér: https://forms.gle/enx5FGqKVa4V4zGW9
Gestir eru minntir á að fylgja gildandi sóttvarnareglum. Handspritt er við innganginn, gestir þurfa að vera með grímur og virða tveggja metra regluna eins og kostur er.