Listamannaspjall – SAMTVINNA

laugardaginn 2. september, 2023 kl. 13 í Gallerí Gróttu, Eiðistorgi, Seltjarnarnesi

Í listamannaspjallinu fjallar Unnur Óttarsdóttir myndlistarmaður um málverk, ljósmynda- og hljóðverk á sýningunni Samtvinna. Fer hún yfir þróun og gerð verkanna og hugmyndirnar sem liggja að baki. Fjallar hún einnig um teikningar sem gerðar hafa verið af öðrum listamönnum í bókverk sem samtvinna listræna krafta þeirra og Unnar.

Gestum gefst tækifæri til að varpa fram spurningum og hugrenningum og vera þannig í beinni samræðu við Unni.

Ljósmynd: Solveig Thoroddsen